Karlalandsliðið í fótbolta!

Flestir virðast sammála því að árangur karlalandsliðsins í fótbolta sé óásættanlegur. Ráðamenn í þeim málefnum virðast einnig fullvissir um að ekki sé sérstök ástæða til að gera eitthvað í málinu!

Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á því hvað sé ásættanlegur árangur og hvað ekki. Mér finnst stundum að þeir sem tjá sig um þessi mál gleymi því að Ísland er örþjóð og árangur út af fyrir sig að hægt sé að koma saman sem liði sem ekki verður sér til skammar. Kannski hefur það ekki tekist sl. misseri og kannski er óþarfi að raðast neðar en Færeyjar á styrkleikalista. Hvað veit ég!

Hitt veit ég að fótbolti fær allt of mikla athygli hér á landi. Tek fram að mér þykir gaman að horfa á góðan fótbolta. Þykir jafnleiðinlegt að horfa á lélegan fótbolta.  Íslenskur fótbolti er því miður allt of oft í þeim flokki. Varla við öðru að búast þegar tekið er mið af fjölda liða í efstu deild. Liðin eru einfaldlega allt of mörg miðað fjölda íbúa. Ástæðan fyrir því er að allt of mörgum er beint í fótbolta en ættu í raun að stunda aðra íþrótt. Gætu þar hugsanlega náð mun betri árangri.

Um þetta skrifaði ég færslu fyrir um tveimur árum og í stað þess að endurtaka hana þá vísa ég til hennar hér. Hef út af fyrir sig ekkert skipt um skoðun.

Áfram Ísland!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sæll Þórhallur. Sem knattspyrnuþjálfari til margra ára þá er líkamsstærð og þyngd ekki ráðandi þáttur, heldur margir aðrir þættir. Slakur árangur má m.a. rekja til skorts á fagmennsku í uppbyggingu og stjórnun. Einn af samstarfsmönnum þínum er t.d. einn af betri fagmönnum í knattspyrnunni lika. Legg til kaffifund til þess að fara yfir stöðuna.

Sigurður Þorsteinsson, 14.8.2011 kl. 12:45

2 Smámynd: Dexter Morgan

Við verðum bara að passa það að núverandi þjálfari komist ekki með puttana í yngri landsliðinn og skemmi þau líka með sínu alkunna fúllyndi, hroka og leiðinlegri framkomu og spilamennsku sem hann leggur upp með. Enda eru landsliðsmenn löngu búnir að fá nóg, hættir að bera nokkra viðrðingu fyrir honum og vona að hann hætti sem fyrst. KSÍ-klíkan á líka að bera ábyrgð og láta sig hverfa.

Dexter Morgan, 15.8.2011 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband