Fleiri skondnar auglýsingar
1.4.2010 | 08:50
Hér er auglýsing sem flestum þykir augljós tímaskekkja, eiginlega hálfgert grín!
Einhver gæti álitið að svona geti bara gerst í útlöndum. Verum nú ekki of viss um það.
1.4.2010 | 08:50
Hér er auglýsing sem flestum þykir augljós tímaskekkja, eiginlega hálfgert grín!
Einhver gæti álitið að svona geti bara gerst í útlöndum. Verum nú ekki of viss um það.
Athugasemdir
Bara í útlöndum? einmitt- alls ekki! Þegar ég var barn fór mamma með mig út af kíghósta til heimilislæknisins sem var á Klapparstígnum. Mamma útskýrði fyrir honum hve mikilfengleg hóstasogin væru í krakkanum svo lá við köfnun í hvert skifti, á meðan reykti læknirinn heila sígarettu og púaði með öskubakkann á skrifborðshorninu. Þessi læknir var vinsæll og vel liðinn og þótti skemmtilegur, minnir að það hafi verið reykt á biðstofunni líka-samt ekki viss.
Ef einhverjum finnst þetta ótrúlegt þá er þetta álíka langt síðan og annar hver maður reykti eins og strompur í fullri flugvél og langferðarútum. - Þeir sem kvörtuðu undan reyk, náfölir og flökurt var yfirleitt vinsamlegast sagt að vera ekki að gera fólki lífið leitt með svona leiðindakvarti. Fyrir þessa varnarbaráttu fékk reyklaust fólk á sig að vera frekar leiðinlegt fólk sem lítið væri gaman að tala við. -Sama gilti um okkur krakkanna, fæstir fullorðnir nenntu heldur að tala við okkur.
Anna Björg Hjartardóttir (IP-tala skráð) 2.4.2010 kl. 15:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.